Færsluflokkur: Bloggar

Sofandaháttur??

Ég get nú bara ekki orða bundist varðandi þetta mál sem greiðandi í þennan sjóð, hvar er ábyrgð þessara manna sem skipa stjórn og tala nú ekki um framkvæmdastjórann, sé bara eina leið að kalla eigi saman sjóðfélagafund núna og það á að setja þessa menn af, ef þeir geta ekki séð sóma sinn í að segja upp sjálfir. Hneyksli og ekkert annað, og ég tala nú ekki um þennann vesæla lögmann sem yfirsást þetta, við eigum að láta reyna á ábyrgð lögmannsstofunnar einnig, sem sennilega verður gjaldþrota en hvað um það, eiga lífeyrisþegar að taka við skerðingu vegna þessa??
mbl.is Óljóst hvað verður um kröfu Stapa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyndarmál??

Þetta er Hol-i-s-uk
mbl.is Enginn sýnt fram á að samningurinn stofni Íslandi í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar!!

Ja hérna, aldrei hefur manni langað til að skila auðu eins og nú, en svona á maður ekki víst að hugsa, á að nýta réttinn sem maður hefur, kjósa og hana nú. Ég ætla rétt að vona að fólkið fari nú ekki að kjósa liðónýtt samfylkingarlið þar sem núverandi formaður hefur alltaf sagt ætla að bera ábyrgð sem hefur aldrei orðið og mun sennilega aldrei verða. Hún sýnir það best með því að sitja sem fastast á sínum rassi, er sennilega límdur við sessuna, er það ábyrgð á fyrri gjörðum. NEI. Ábyrgðin fólst í því að segja af sér á sínum tíma, en þetta bara sýnir að best sé að hugsa um eigið skinn, aðrir geta bara átt sig, en við eigum að vera nógu góð í dag til þess að kjósa hana aftur, nei takk, og ég veit að fleirum sem hafa hugsað sér að gera það ekki. Eins er þetta með vinstri græna þar sem formaðurinn hefur enga stjórna á liðmönnum sínum, ekki síst á þessari svokallaðri ungliðahreyfingu, sem var undirrótin í þessari svokallaðri eldhúsbyltingu, og eftir að hafa heyrt það sjálfur frá liðmönnum þeirra hreykja sér af þessu hafa vaknað spurningar hvort þeir hafi veitt þessari lýðræðishreyfingu sem þóttist standa fyrir þessum uppákomum í bænum, einnig fjárhagslegan stuðning með afganginum af stuðningsgreiðslum frá Baugsveldinu?? maður bara spyr. Hvað á mikið eftir að koma upp úr krafsinu um þessa pólítíkusa varðandi fleiri spillingamál?? alveg örugglega meira, en maður bara spyr aftur, af hverju þora þeir ekki að birta í heild sinni niðurstöður úr rannsóknum á bankahruninu??hverju voru þessar sporslur sem ekki þola dagsins ljós??? eða voru þetta ekki óháðir rannsóknaraðilar sem tóku þetta mat út??? Hvorki Jóhann né Steingrímur munu þora að láta birta þessar skýrslur vegna þess að þetta mun koma við kaunin á svo mörgum vinum og velvildarvinum þessara flokka, að það mun aldrei verða, en ég mun taka ofan fyrir þeim ef þetta verður gert opinbert, og þá mun ég kjósa þau í næstu kosningum, svo mikið er víst, ekki í dag.


Spilling????

Hvernig í ósköpunum geta þingmenn núverandi ætlast til að fá X-ið á kjörseðilinn eftir allt sem á er gengið miðað við alla þessa spillingu sem hefur viðgengist??? líta menn ekki á þetta sem greiðslu fyrir tilvonandi ívilnanir??? þeir geta reynt að segja okkur annað, eins og að koma fram fyrir alþjóð og segjast hafa sjálfstæðann vilja og skoðun en það sjá allir hvað er í gangi. Þetta segir okkur bara eitt, að það á enginn sem er þingmaður, maki eða náskyldur að sitja í nokkurri stjórn, eða eiga nokkur hlutabréf eða annað sem gæti hugsanlega spillt málefnum sem eru oft á tíðum til umfjöllunar á þessu háa alþingi Hann verður bara fyrst að gera upp við sig hvort hann vilji vera þingmaður eður ei en þá verða þetta skilyrðin. Annars verður ætiíð hægt að draga í efa allt sem þessir þingmenn gera enda er hvort sem er ekkert siðferði til hjá þessum a....... þingmönnum, sama hver er. Það er alltaf einhver sem þekkir einhvern og þannig verður það, því miður, enda er enginn vilji hjá þingmönnum til að breyta þessu, þeir hafa það bara allt of gott, passa sitt og sinn rass.

Ennfremur eiga þeir alls ekki að fá greitt fyrir nein nefndarstörf vegna þess að þetta er jú þeirra starf og ætti að vera innifalið í þinglaunum, og þessu þarf að breyta vegna þess að laun hins almenna launamanns hafa verið skorin niður og svo á einnig að vera hjá hinu háa alþingi, takk fyrir.


Erfðir?????

Hlýtur að vera erfðafjárskattur af þessu***
mbl.is Fullyrt að Björn hætti eftir landsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í tilvistarkreppu fávísinnar

. Þessi reyfarakenndi farsi ríkisstjórnarinnar er alveg með ólíkindum slakur og ekki skrítið þó fólk treysti þessum aðilum ekkert lengur. Skrítið er hversu langur tími er liðin og ekkert t.d. bólar á ráðningu á erlendum sérfræðingum til að fara í saumana á bankamálunum. Hefur ríkisstjórnin eitthvað að óttast??? Hvað er það sem ekki má láta koma á yfirborðið?? Er verið að vernda eiginhagsmunapot stjórnmálamanna??? Það hefur allatíð verið lausnin hjá stjórnmálamönnum að setja allt í nefnd, jú þetta er auðvitað í nefnd til að kanna hvort setja eigi þetta í nefnd eða ekki. Síðan þessi svokallaði pakki fyrir fjölskyldurnar í landinu, hann er bara brandari, auðvitað hjálpar aðeins með barnabætur, en það jú bara hluti fólks þær bætur, en gerir í raun ekkert. Frysting lána fyrir húseigendur hjálpa lítið, afborganir verða ennþá verri þegar síðar verður greitt af lánunum. Frysting af lánum í erlendri mynt, en hvað um annað fólk??Hef sett niður nokkur atriði á blað sem væri gaman að fá svör við ef einhver veit betur en fávís þjóðfélagsþegn sem hér skrifar. Held að nú sé ráð á að gefa upp á nýtt í sambandi við kvótakerfið, við eigum ekki að láta þessa kvótakónga stjórna samfélaguppbyggingunni hér fyrir okkur. Setja ætti nú þegar neyðarlög sem taka þennan kvóta að þeim, já bara si svona eins auðveldlega og þeir fengu þetta upp í hendurnar. Ástæðan er jú, þetta er víst í eigu okkar íslendinga og á þessum tíma er sveitarfélögin sjá fram á verri tíð með minnkandi tekjum, á að úthluta þessum kvóta á ný til samfélagsins, (sveitarfélaga) sem síðan ráðstafa þessu til fólksins í þeim, ráða hverjir fá að veiða og eða leiga en aldrei verður hægt að selja kvótann, tekjur fyrir sveitarfélögin, og geta jafnvel orðið til atvinnutækifæra í sveitarfélaginu á ný. Nú þegar þörf er á að spara eru hérna nokkur atriði sem ríkistjórnin og aðrir hlutaðeigundur ættu að skoða, sem mér þykja kannski róttækar en er ekki þörf á slíku í dag??? Jú öll þurfum við að spara, líka ráðamenn. Það sem mér þykir afar skrítið, ekki bara í dag heldur um langa tíð er, því í ósköpunum eru menn að fá greitt, hvort heldur sem er í hlutafélögum eða á hinu háa alþingi, laun fyrir að sitja í nefndum og ráðum???’ er þetta ekki hluti starfans sem þeir gegna fyrir okkur??? Jú þeir eru á launum sem alþingismenn og eiga ekkert með það að þiggja aukagreiðslur fyrir að sinna vinnunni sinni sem þingmenn, skítt hinsvegar með dreifbýlisstyrkinn. Simakostnað, frímerki, risnukostnaður, bifreiðahlunnindi og annarskonar kostnaður geta þeir bara greitt sjálfir, ekki eru þeir á neinum smánarlaunum, þeir geta alveg gert þetta eins og ég. Sama ætti að gilda um ráðuneyti sem gert er að spara, sbr ferðakostnað oþh.  Ég get bara ómögulega séð til dæmis með ferðir menntamálaráðherra, að þörf hafi verið á 2 ferðum til kína með fríðu föruneyti, þó svo ég sé afar stoltur af handboltalandsliðinu, þá er bara ekkert sem segir að við eigum að greiða undir rassgatið að föruneytinu í 2 ferðir, Þorgerður taktu þig til og endurgreiddu aðra ferðina, held að þig hafið alveg nóg í ykkur og á og það er eflaust meir en margur hefur í dag. Ennfremur er furðulegt að ekki er vilji fyrir því á alþingi að settir séu á hátekjuskattar, ja er það ekki bara þannig að þetta mun snerta þetta ágæta fólk fyrir og jafnvel valda úlfúð hjá helstu styrktaraðilum stjórnmálaflokkana??? Því  hefur t.d. verkalýðsforystan okkar aldrei talað fyrir slíkum hlutum??? Kemur þetta sér eitthvað illa hjá þeim???  Svo væri hægt að fara þá leið að breyta skattalögum með því að taka fyrir allar undanbragðaleiðir til lækkana á tekjusköttum hátekjumanna, sem eru óspart notaðar. 

Er ekki kominn tími til að gefa upp á nýtt????

Jú maður hefði nú haldið að þessi gömlu spil séu úr sér gengin og skipta þar um stokkinn og gjafarann. Við þessir almennu spilamenn höfum sem hingað til aðeins fengið hrökin og ég tel að gjafarinn hafi svindlað heldur betur, hann er nefnilega vinur andstæðingana hinu megin við borðið. Burt gjafarann og svindlarana við borðið, og sennilega ættum við að þakka pent fyrir það að vera ekki í villta vestrinu, það væri nefnilega búið að skjóta þá alla, upp til hópa.  Burt með gamblarana.

Forgangur!!

Mörgum er farið að þykja þetta skrítið allt saman, stjórnvöld ætla að greiða útlendingum fyrst það sem þeir eiga inni hjá bönkunum en hvar eru okkar greiðslur sem áttum að vera i fyrsta sæti???? Greiðið okkur fyrst, þeim síðar, eigum við bara að taka þessi lán til að greiða meira. HVAR ERU LOFORÐIN????OG EFNDIRNAR!!!
mbl.is Þjóðverjar lána Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppgjöf??

Held að fólk sé hætt að skilja í hlutunum hérna, það er eitt sagt í dag og annað á morgun. Hvenær ætla ráðamenn að segja okkur eins og er, var þetta ekki alltaf í spilunum gagnvart alþj.gjaldeyrissjóðnum eða hvað??? Hins vegar segir lögfræðingur sem tók þátt í samningagerð um ESB að við þurfum ekki að greiða þetta, hvað er að marka þetta??? Og Geir, þú ætlaðir ekki að láta hótanir fara með þig, en hvað er þá þetta annað en þvinganir.
mbl.is Samningar um Icesave eina leiðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi????

Já hvað er eiginlega í gangi eiginlega??? alþingismenn loksins farnir að taka sönsum og axla ábyrgð á gjörðum sínum eins og Bjarni framsóknarmaður gerði, held að fleiri ættu að taka til í eiginn ranni, svo mikil er spillingin allstaðar á þinginu. 'ingibjörg og geir væla  útí eitt og segja engan hafa brotið af sér í sínum flokkum, veit nú ekki til annars en Björn hafi ráðið afar pólítískar ráðningar í sinni ráðherratíð, sbr son Davíðs Odds, viðskiptaráðherra skipaði besta vin sinn í ágætt job og fleira í þeim dúr. Málið er að Geir getur ekki sett Davíð út í kuldann þar sem Oddson hefur hann alveg í vasanum og raunar skipar held ég ennþá í Valhöll, en þvílíkt skipbrot sem einn flokkur hefur gert verður sennilega seint bætt. Það versta kannski við þetta er það, að í næstu kosningum verður öllu lofað svo fjálglega og sætt, að fólk gleypir þessu sem nýju neti og kýs þessa andskota aftur og aftur, sama hvað þeir eru búnir að gera. Svona til að bæta gráu ofan á svart megum við ekkert vita á hverju gengur hérna og annarsstaðar þar sem þeir eiga að vinna fyrir okkur, við eigum hvort heldur sem er að greiða allann pakkann. Hvernig væri að láta þessa forkólfa viðskiptamanna skila til baka þeim gróða sem þeir hafa skammtað sér og sínum?? sem þeir hafa hirt af saklausum borgurum þessa lands???? og ætla svo að setja á fót "einhverja nefndina enn" til að rannsaka þessa kreppu og það pólítíska er fáráðnlegt, við munum aldrei fá þetta upp á yfirborðið með þeim hætti, sorry. Og svona að lokum, held að það sé borðleggjandi dæmi að hinn fávísi formaður VR ætti að segja af sér hið snarasta og vera maður af meiri.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband